Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. janúar 2021

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skemmdir unnar á bifreið borgarstjóra

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál sem snýr að skemmdum sem voru unnar á bifreið borgarstjórans í Reykjavík, en málið er litið mjög alvarlegum augum. Rannsóknin beinist m.a. að því hvort skotvopn hafi verið notað við verknaðinn og eins hvort málið tengist öðru frá því í síðustu viku þar sem voru unnar skemmdir á húsnæði Samfylkingarinnar í Sóltúni í Reykjavík. Bifreiðin, sem varð fyrir skemmdum, er í eigu borgarstjóra og fjölskyldu hans.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.