Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. apríl 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Skemmdir á lögreglubifreiðum

Nokkuð hefur borið á því á liðnum misserum að einstaklingar vinni skemmdir á lögreglubifreiðum. Embætti ríkislögreglustjóra lítur slík mál alvarlegum augum. Fyrir nokkru var tekin sú ákvörðun að fela lögmannsstofu að útbúa ítarlegar bótakröfur í slíkum tilvikum og fylgja innheimtu krafnanna eftir af festu. Hefur það gefið góða raun og verður því haldið áfram.