20. janúar 2022
20. janúar 2022
Sjúkratryggingar hafa samið um allt að 30 manna liðsauka til að styrkja mönnun á Landspítala
Sjúkratryggingar Íslands hafa gert samning við Lækningu í Lágmúla um að styrkja tímabundið mönnun á Landspítala vegna Covid-19. Þetta er þriðji samningurinn sem gerður er í þessu skyni en áður hafði verið samið við Klíníkina og Orkuhúsið.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3hHbVHkBee6hBvJPJohxus/662573a957131341ef7e6e32f0bdf29a/STI_Logo_Litur_transparent.jpg?w=50&fm=webp&q=80)
![Sjúkratryggingar lógó](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/3hHbVHkBee6hBvJPJohxus/662573a957131341ef7e6e32f0bdf29a/STI_Logo_Litur_transparent.jpg?w=774&fm=webp&q=80)
Samtals fela samningarnir í sér möguleika á auknum liðsstyrk 10 svæfingarlækna, 18 hjúkrunarfræðinga á sviði almennrar hjúkrunar og skurðstofu-og gjörgæsluhjúkrunar og 2 sjúkraliða á tímabilinu 10. - 28. janúar.