22. mars 2010
22. mars 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Sjö teknir fyrir ölvunarakstur
Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Sex voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og þrír á sunnudag. Þetta eru allt karlar en þeir eru á aldrinum 19-40 ára.