Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. apríl 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö teknir fyrir ölvunarakstur

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Sex voru teknir á laugardag og einn á sunnudag. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 20-46. Þrír þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.