Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. janúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö teknir fyrir ölvunarakstur

Sjö ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra voru stöðvaðir á nýársdag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-24 ára og tvær konur, 26 og 28 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hefur aldrei öðlast ökuréttindi.