Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Hafnarfirði og einn í Mosfellsbæ. Þrír voru teknir á bæði laugardag og sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-48 ára. Þrír þeirra höfðu jafnframt þegar verið sviptir ökuleyfi.