Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

29. ágúst 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Sex þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Mosfellsbæ. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, tveir á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-39 ára. Tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.