Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. maí 2010

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sjö óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sjö ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm voru stöðvaðir í Reykjavík og tveir í Kópavogi. Þrír voru teknir á laugardag og fjórir á sunnudag. Þetta voru sex karlar á aldrinum 19-37 ára og ein kona, 36 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptir ökuleyfi, annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi og sá þriðji var á stolnum bíl.