Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

16. júlí 2025

Síðasti dagur strandveiða

Í dag var síðasti dagur strandveiða.

Öll strandveiðileyfi falla því niður frá og með morgundeginum og er skipum þá heimilt að halda til veiða ef þau eru með almennt veiðileyfi. Ef skip var í núllflokki áður en það fékk strandveiðileyfi þarf að sækja um almennt veiðileyfi áður en haldið er til veiða á ný. Hægt er að skoða hvort skip sé með veiðileyfi á vefsíðu Fiskistofu undir skipaleit en athugið að strandveiðileyfið gæti verið inni í nokkra daga þrátt fyrir að búið sé að fella það úr gildi.

Þeir aðilar sem eiga rétt á byggðakvóta og vilja fá úthlutað eftir að strandveiðum lýkur er bent á að senda beiðni þess efnis á byggdakvoti@fiskistofa.is og óska eftir úthlutun. Öllum erindum verður svarað og reynt verður að bregðast við eins fljótt og kostur er á, en töluvert álag er á starfsfólki Fiskistofu við úthlutun byggðakvóta við lok strandveiða.

Athugið að staða mótframlags á gagnasíðu Fiskistofu kann að vera vantalið þar sem skil á vorskýrslum júní mánaðar eru ekki fyrr en 20. júlí næsktomandi. Sjái útgerðaraðili fram á að þurfa fá byggðakvóta úthlutuðum fyrir þann tíma og telji sig uppfylla kröfu um mótframlag en staðan vantalin í gögnum Fiskistofu bendum við þeim á að hafa samband við vinnsluaðila.