Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. ágúst 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Síbrotamaður í umferðinni

Af einhverjum ástæðum eiga sumir ökumenn mjög erfitt með að virða hámarkshraða. Þetta á ekki bara við um unga ökumenn því þeir eldri og reyndari eru ekki alltaf bestu fyrirmyndirnar. Einn slíkur var stöðvaður í Grafarvogi eftir að bíll hans mældist á 95 km hraða þar sem hámarkshraði er 60. Ökumaðurinn, karl um sextugt, hefur alloft áður verið tekinn fyrir hraðakstur, m.a. nokkrum sinnum á þessu ári. Maðurinn virðist alltaf vera á hraðferð því bíll hans mælist gjarnan á 30-40 km hraða umfram leyfðan hámarkshraða. Engin sérstök von er til þess að maðurinn láti af þessari iðju, en hann var ekki mjög vinsamlegur við síðustu afskipti lögreglunnar og sakaði lögreglumenn á vettvangi um bæði valdníðslu og einelti.