Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

23. febrúar 2026

Síbrotagæsla eftir ítrekuð afskipti

Um helgina hafði lögreglan á Suðurnesjum afskipti af sama manninum tvo daga í röð vegna gruns um nytjastuld, aksturs undir áhrifum og fjölmörg önnur umferðalagabrot.

Í seinna skiptið sinnti maðurinn ekki stöðvunarmerkjum lögreglu. Aðilinn hefur ítrekað og endurtekið komið við sögu lögreglu. Í því skyni að stöðva brotastarfsemi aðilans var hann úrskurðaður í síbrotagæslu.