28. september 2010
28. september 2010
Þessi frétt er meira en árs gömul
Sextán teknir fyrir ölvunarakstur
Sextán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Tólf voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Mosfellsbæ og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Tveir voru teknir á föstudagskvöld, sjö á laugardag, sex á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru átta karlar á aldrinum 18-49 ára og átta konur á aldrinum 21-49 ára. Tveir þessara ökumanna höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.