Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

13. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex teknir fyrir ölvunarakstur

Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í Reykjavík um helgina. Þrír þeirra voru stöðvaðir á laugardag og þrír sömuleiðis á sunnudag. Þetta voru fjórir karlar á aldrinum 21-50 ára og tvær konur, 33 og 42 ára. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi.