11. apríl 2011
11. apríl 2011
Þessi frétt er meira en árs gömul
Sex teknir fyrir ölvunarakstur
Sex ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fjórir þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Fjórir voru teknir á laugardag og tveir á sunnudag. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 18-79 ára og ein kona, 22 ára.