Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. mars 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Tveir voru stöðvaðir í Reykjavík og Garðabæ og einn í Kópavogi og Hafnarfirði. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag, einn á sunnudag og einn aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-36 ára en tveir þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi.