Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

1. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fimm þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík og einn í Kópavogi. Einn var tekinn á föstudagskvöld, þrír á laugardag og tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 17-30 ára og ein kona um tvítugt. Einn þessara ökumanna hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.