Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

27. febrúar 2012

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sex óku undir áhrifum fíkniefna

Um helgina voru sex ökumenn teknir á höfuðborgarsvæðinu fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Þrír þeirra voru stöðvaðir í Reykjavík, tveir í Kópavogi og einn í Hafnarfirði. Tveir voru teknir á bæði laugardag og sunnudag og sömuleiðis tveir aðfaranótt mánudags. Þetta voru allt karlar en þeir eru á aldrinum 18-29 ára. Einn þeirra hafði þegar verið sviptur ökuleyfi og annar hefur aldrei öðlast ökuréttindi.