3. september 2021
3. september 2021
Sérveiðileyfi 2021/2022
Vakin er athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár.
Vakin er athygli á því að sækja þarf sérstaklega um öll sérveiðileyfi fyrir hvert fiskveiðiár. Sérveiðileyfi vegna fiskveiðiársins 20/21 hafa fallið úr gildi
Vegna komandi fiskveiðárs 2021/2022 þarf að sækja sérstaklega um eftirtalin leyfi og er það gert í Ugga, þjónustugátt Fiskistofu:
Dragnótarveiðileyfi
Leyfi til veiða á kúfskel til manneldis *
Leyfi til veiða á beitukóngi *
Leyfi til veiða á kröbbum
Leyfi til frístundaveiða (Skilyrði útgáfu leyfis er að rekstraraðili báts hafi ferðaskipuleggjandaleyfi Ferðamálastofu og þeir bátar sem hyggjast veiða á sjóstöng án fénýtingar aflans þurfa farþegaleyfi Samgöngustofu)
Með umsókn um stjörnumerkt leyfi skal fylgja samningur um vinnslu í landi eða jafngild yfirlýsing þegar um eigin vinnslu er að ræða. Í báðum tilfellum þarf staðfesting frá MAST að fylgja um að viðkomandi vinnsla hafi gilt vinnsluleyfi frá MAST.