Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. nóvember 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sendinefnd frá lögreglunni í Lettlandi

Þessa dagana er sjö manna sendinefnd frá Sirene skrifstofu lögreglunnar í Lettlandi í heimsókn hér á landi. Tilgangur heimsóknarinnar er að kynna sér starfsemi Sirene skrifstofunnar og þá tæknilegu útfærslu sem alþjóðadeild ríkislögreglustjóra hefur mótað þeirri starfsemi.

Sendinefndin mun leggja áherslu á að kynna sér dagleg störf skrifstofunnar og hvernig hún fellur að öðrum störfum alþjóðadeildar. Jafnframt heimsækir hún Tölvumiðstöð dómsmálaráðuneytisins, lögreglustjórann á Keflavíkurflugvelli, fjarskiptamiðstöð ríkislögreglustjóra og Landhelgisgæsluna.

Myndin sýnir ríkislögreglustjóra funda með sendinefndinni.