Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

28. maí 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Sekt fyrir nagladekkin

Lögreglan stöðvaði fimm ökumenn á höfuðborgarsvæðinu í gær sem allir voru á bílum á nagladekkjum en það er vitaskuld með öllu óheimilt á þessum árstíma. Hinir sömu þurfa að greiða 5 þúsund krónur í sekt fyrir hvert nagladekk og því kemur trassaskapurinn verulega við pyngjuna hjá áðurnefndum ökumönnum.

Lögreglan ítrekar þau tilmæli til eigenda og umráðamanna ökutækja sem eru búin nagladekkjum að gera þar bragarbót á.