5. mars 2026
5. mars 2026
Samstarf lögreglu og Vegagerðar
Vegalokanir vegna ofanflóðahættu á vegum.

Öryggisráðstafanir vegna ofanflóðahættu.
Reglulega hittast fulltrúar Vegagerðarinnar og lögreglunnar til að stilla saman strengina varðandi vegalokanir þegar ofanflóðahætta skapast.
Í vikunni var einn slíkur fundur haldinn.
Á norðanverðum Vestfjörðum eru nokkrir vegir sem liggja undir bröttum hlíðum þar sem ofanflóðahætta getur orðið, að sumri sem vetri. Nú fá lögreglan og Vegagerðin faglegt mat frá ofanflóðaeftirliti Veðurstofa Íslands og unnið er með þær niðurstöður þegar öryggisráðstafanir ákveðnar. Grípa þarf stundum til vegalokana til að tryggja öryggi vegfarenda.
Á norðanverðum Vestfjörðum hefur, í tímans rás, orðið til þétt og gott samstarf þessara tveggja stofnana. Að taka ákvörðun um lokun vega er grafalvarleg ákvörðun en einnig ákvörðun um hvenær sé óhætt að opna fyrir umferð á ný. Allar slíkar ákvarðanir eru ræddar af þessum tveimur stofnunum.
Veðurstofa Íslands er með tvo vegakafla á NV Vestfjörðum í sérstakri vöktun fyrir þessar tvær stofnanir, vegagerðina og lögregluna. Það eru Súðavíkur- og Kirkjubólshlíð og Flateyrarvegur.
Á sunnanverðum Vestfjörðum er vegurinn um Raknadalshlíð í vöktun.
Myndin hér að neðan var tekin í tilefni fundarins. Til vinstri eru þeir Sigurður Guðmundur Sverrisson og Bernharður Guðmundsson, starfsmenn Vegagerðarinnar og til hægri þeir Ingvar Jakobsson og Hlynur Hafberg Snorrason frá lögreglunni á Vestfjörðum.