Fara beint í efnið

15. nóvember 2024

Samningur undirritaður um augnlækningar á Austurlandi

Sjúkratryggingar Íslands, heilbrigðisráðuneytið og Heilbrigðisstofnun Austurlands undirrituðu í gær samning um augnlækningar á Austurlandi. Samningurinn tryggir þessa þjónustu við íbúa á Austurlandi.

Samningur

Fyrirkomulag þjónustunnar felur í sér að augnlæknar verða með móttöku á Egilsstöðum, fimm daga í senn, fimm til sjö sinnum á ári. Þess utan veiti þeir fjarheilbrigðisþjónustu gegnum fjarbúnað sem heilbrigðisstofnun Austurlands hefur nýlega fest kaup á. Heilbrigðisstofnunin verður jafnframt með sérþjálfaðan starfsmann sem sinnir þjónustu við sjúklinga í tengslum við notkun búnaðarins á staðnum.

Miklar vonir eru bundnar við þessa nýju þjónustu, þar sem um nokkurt skeið hefur ekki verið þjónusta augnlækna á Austurlandi. Augnlæknarnir sem hafa tekið að sér að sinna þjónustunni eru með reynslu af samskonar þjónustu erlendis sem gengið hefur vel.

Stór og mikilvægur áfangi í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni

„Hér sjáum við íslenska heilbrigðisstefnu í framkvæmd, þar sem markvisst er unnið að því að jafna aðgengi landsmanna að heilbrigðisþjónustu óháð búsetu og nýta til þess samninga og jafnframt tæknilausnir á sviði fjarheilbrigðisþjónustu. Samningurinn við sérgreinalækna er mikilvægur liður í þessu en honum er m.a. ætlað að styðja við framþróun í þjónustu sérfræðilækna með áherslu á nýsköpun og stafræna þróun,“ segir Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra. „Þessi samningur getur jafnframt orðið fyrirmynd sérgreinaþjónustu um allt land.

,,Þetta er stór og mikilvægur áfangi í heilbrigðisþjónustu á landsbyggðinni og tryggir íbúum á Austurlandi aðgang að augnlækningum í þeirra heimabyggð.Sjúkratryggingar hafa á undanförnum árum gert samninga til að efla þjónustu á landsbyggðinni og við vonumst til þess að geta fjölgað þeim enn frekar," segir Sigurður Helgi Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.

,,Við hjá HSA höfum fundið verulega fyrir því að þjónustu augnlækna hefur vantað á svæðið og því hafa margir þurft að fara um langan veg til þess að fá þjónustu augnlækna og því miður margir hreinlega ekki fengið neina þjónustu af því tagi. Nú sér fyrir endann á því með þessu spennandi verkefni sem nú er farið í gang," segir Guðjón Hauksson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands.

Á meðfylgjandi myndum má sjá Sigurð Helga Helgason, forstjóra Sjúkratrygginga, Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra og Guðjón Hauksson, forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands, við undirritun samningsins um augnlækningar á Austurlandi.

Samningur