Fara beint í efnið

20. júlí 2023

Samningur um réttindi á sviði almannatrygginga við Bretland undirritaður

Ísland hefur undirritað samning við Bretland um samræmingu almannatrygginga, sem mun einkum gilda um elli-, örorku, og eftirlifendalífeyri, bætur vegna meðgöngu eða fæðingar, atvinnuleysisbætur, dánarbætur, sjúkrabætur og bætur vegna vinnuslysa.

TR tilkynningakona

Samningurinn er gerður þar sem reglur EES-samningsins gilda ekki lengur um Bretland og kveður á um framtíðarfyrirkomulag hvað varðar réttindi á sviði almannatrygginga, aðallega lífeyrisréttindi og sjúkratryggingar þeirra sem fara eða flytjast milli landanna. Hann tekur til allra sem falla undir löggjöf ríkjanna og eru þar löglega búsettir þegar þeir fara eða flytja á milli samningsríkjanna. Samkvæmt samningnum verður hægt að fá ellilífeyri sem ávinnst eftir gildistöku samningsins greiddan þótt búið sé í öðru samningsríki og nýta sér tryggingatímabil frá öðru samningsríki að ákveðnu marki til að komast fyrr inn í tryggingakerfi ríkjanna þegar flutt er á milli.

Við gildistöku samningsins verða evrópsk sjúkratryggingakort sem gefin eru út á Íslandi tekin gild í Bretlandi á ný og munu háskólanemendur frá EES/EFTA-ríkjunum sem eru í námi í Bretlandi geta sótt um endurgreiðslu á heilbrigðisgjaldi, en það er gjald sem Bretland leggur á í tengslum við umsóknir um atvinnu- og dvalarleyfi.

Samningurinn byggist á fyrirliggjandi samningi Bretlands og ESB á þessu sviði og skrifuðu Noregur og Lichtenstein einnig undir hann.

Stefnt er að því að samningurinn taki gildi á Íslandi fyrir lok árs.

Sjá frétt á vef Stjórnarráðsins.