Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

25. október 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rútuslys á Þingvallavegi

Rúta með erlenda ferðamenn hafnaði utan vegar við Þingvallaveg, nálægt Skálafellsafleggjaranum,á ellefta tímanum í morgun. Talið er að um 40 farþegar hafi verið um borð í rútunni, auk ökumanns og leiðsögumanns. Fjölmennt lið björgunaraðila hélt þegar á vettvang, en strax var ljóst að um alvarlegt slys var að ræða. Slasaðir voru fluttir á Landspítalann, en jafnframt var fjöldahjálparstöð Rauða krossins í Mosfellsbæ virkjuð. Aðgerðir á vettvangi standa enn yfir og Þingvallavegur er áfram lokaður.

Lögreglan ítrekar að þeir sem kunna að hafa tekið upp farþega á svæðinu láti vita tafarlaust um slíkt í síma 112. Mjög áríðandi eru þessar upplýsingar komi strax fram svo hægt sé að tryggja að allir sem voru um borð í rútunni séu komnir i leitirnar.

Leiðsögumaður og ökumaður rútunnar eru íslenskir, en meirihluti farþeganna kínverskir.