Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

3. maí 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rúmlega tuttugu í hraðakstri

Rúmlega tuttugu ökumenn hafa verið staðnir að of hröðum akstri í umdæmi lögreglunnar á Suðurnesjum á undanförnum dögum. Sumir þeirra höfðu ýmislegt fleira en hraðaksturinn á samviskunni. Tveir höfðu til dæmis aldrei öðlast ökuréttindi. Einn til viðbótar ók sviptur ökuréttindum og var einnig undir áhrifum fíkniefna við aksturinn. Þá hafði lögregla afskipti af fimm ökumönnum til viðbótar við hraðakstursökuþórana, sem óku undir áhrifum vímuefna. Tveir voru ölvaðir og annar þeirra sviptur ökuréttindum. Þrír óku undir áhrifum fíkniefna, tveir þeirra sviptir ökuréttindum og sá þriðji á ótryggðri bifreið.