Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

5. maí 2015

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rúmlega 60 staðnir að hraðakstri

Lögreglan á Suðurnesjum hefur staðið rúmlega 60 ökumenn að hraðakstri á undanförnum dögum. Brotin áttu sér stað á Reykjanesbraut og Grindavíkurvegi, en einnig á öðrum akbrautum í umdæminu. Tveir ökumenn, karlmenn um tvítugt, mældust á mestum hraða. Þeir óku báðir á 146 km. hraða þar sem hámarkshraði er 90 km. á klukkustund. Hraðaksturinn kostar hvorn þeirra 130.000 króna fjársekt, sviptingu ökuleyfis í einn mánuð og þrjá refsipunkta í ökuferilsskrá.

Einn ökumannanna 63, sem staðnir voru að hraðakstri var að auki á ótryggðri bifreið og voru skráningarnúmer hennar fjarlægð af þeim sökum.