Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

11. ágúst 2019

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rólegt á tónleikavaktinni í Laugardal

Seinni stórtónleikar Ed Sheeran á Laugardalsvelli í kvöld fóru í alla staði mjög vel fram að mati Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og, líkt og á tónleikunum í gærkvöld, voru tónleikagestir til mikillar fyrirmyndar. Samstarf lögreglunnar og þeirra sem komu að skipulagningu viðburðarins var sömuleiðis mjög gott, en um 10 mínútur liðu frá því að tónleikunum lauk og þar til síðustu gestirnir höfðu yfirgefið Laugardalsvöll.

Engin teljandi vandamál komu upp á tónleikunum og var vaktin hjá lögreglumönnum á svæðinu með rólegasta móti.