22. júní 2015
22. júní 2015
Þessi frétt er meira en árs gömul
Ríkisstjórn Íslands samþykkir fimm ára innleiðingaráætlun fyrir kynjaða hagstjórn
Ríkisstjórn Ísland samþykkti innleiðingaráætlun um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð fyrir árin 2015 til 2019, á fundi sínum þann 19. júní síðastliðinn. Í jafnréttislögum, lögum nr. 10/2008, segir að við alla stefnumótun og áætlanagerð á vegum ráðuneyta og opinberra stofnanna skuli kynjasamþættingar gætt. Innleiðing kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar (KHF) hófst á Íslandi árið 2009 og byggir á aðferðafræði kynjasamþættingar.
Ríkisstjórn Ísland samþykkti innleiðingaráætlun um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð fyrir árin 2015 til 2019, á fundi sínum þann 19. júní síðastliðinn.
Í jafnréttislögum, lögum nr. 10/2008, segir að við alla stefnumótun og áætlanagerð á vegum ráðuneyta og opinberra stofnanna skuli kynjasamþættingar gætt. Innleiðing kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar (KHF) hófst á Íslandi árið 2009 og byggir á aðferðafræði kynjasamþættingar.
Kynjasamþætting felur í sér að spurt er ákveðinna spurninga og ákveðinni aðferðafræði er beitt við ákvörðunartöku og stefnumótun. KHF snýst því um að sameina þekkingu á kynjamisrétti og þekkingu á gerð fjárlaga í þeim tilgangi að tryggja réttláta og sanngjarna nýtingu opinberra fjármuna.
Áætlunin sem kynnt hefur verið er unnin af verkefnastjórn KHF sem stýrt er af fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Í verkefnastjórninni sitja fulltrúar úr öllum ráðuneytum og frá Jafnréttisstofu.
Innleiðingaráætlunina má finna hér.