Fara beint í efnið

3. september 2026

Reynslumiðlun opinberra frumkvöðla 23. september

Viðburðurinn Reynslumiðlun opinberra frumkvöðla fer fram miðvikudaginn 23. september næstkomandi. Þar flytja verðlaunahafar Nýsköpunarverðlauna hins opinbera 2026 reynslusögur af árangursríkum umbótaverkefnum sem þau hafa komið að í sínum störfum.

Sérstöku ljósi verður varpað á þær áskoranir sem þurfti að yfirstíga og hvaða lærdóm megi draga af umbóta- og nýsköpunarverkefnum hjá hinu opinbera. Viðburðurinn er kjörinn vettvangur fyrir öll sem hafa áhuga á umbótum og nýsköpun í opinberri þjónustu.

Dagskrá og skráning á viðburðinn fer fram hér.