Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

22. ágúst 2006

Þessi frétt er meira en árs gömul

Reyndir ökumenn gera líka mistök

Það eru ekki bara ungir og óreyndir ökumenn sem gerast sekir um hraðakstur. Hinir eldri og reyndari aka líka stundum of hratt. Lögreglan í Reykjavík tók 22 ökumenn fyrir hraðakstur í gær en tæplega helmingur þeirra var 40 ára og eldri. Þetta voru bæði karlar og konur en sá elsti var á sjötugsaldri.

Hinir svokölluðu reyndu ökumenn komu líka við sögu í mörgum þeirra umferðaróhappa sem urðu í gær. Þannig má nefna að kona á áttræðisaldri ók á kyrrstæðan bíl og karl, litlu yngri, ók bíl sem hafnaði aftan á öðrum. Það er því alveg ljóst að ökumenn, á hvaða aldri sem þeir eru, þurfa að hafa einbeitinguna í lagi.

Þá var tvítug kona tekin fyrir hraðakstur en þegar betur var að gáð reyndist hún jafnframt vera réttindalaus. Konan hafði verið svipt ökuleyfi fyrr í sumar og ekki bætti þetta úr skák. Lögreglan stöðvaði líka för fimmtugs karlmanns sem reyndist sömuleiðis vera réttindalaus. Einn var tekinn fyrir ölvunarakstur.