Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. september 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Réttindalausir ökumenn

Um helgina stöðvaði lögreglan för sex ökumanna sem höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi. Þetta voru fimm karlar á aldrinum 19-34 ára og ein kona, 20 ára. Til viðbótar var 16 ára piltur staðinn að akstri fólksbíl en sá hefur aldrei öðlast ökuréttindi, eðli málsins samkvæmt.