Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

26. ágúst 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Réttindalausir ökumenn

Sextán réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þrettán þeirra reyndust þegar hafa verið sviptir ökuleyfi og þrír höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Í hópi þeirra síðarnefndu var 15 ára piltur sem var stöðvaður við akstur í Laugardal aðfaranótt laugardags en sá tók heimilisbílinn traustataki og fór á rúntinn. Stráksi gerðist einnig sekur um brot á útivistarreglum en hann hefði betur verið löngu kominn í háttinn í stað þess að komast í kast við lögin.

Þess má geta að þeir sem gerast sekir um akstur bifreiðar eða bifhjóls sviptir ökurétti eiga 60 þúsund króna sekt yfir höfði sér ef um fyrsta brot er að ræða. Ef brotið er af sér með þessum hætti í annað sinn er sektin 100 þúsund krónur.