Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

12. febrúar 2008

Þessi frétt er meira en árs gömul

Réttindalaus ökumaður á níræðisaldri

Sjö réttindalausir ökumenn voru stöðvaðir á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Fimm þeirra reyndust þegar hafa verið sviptir ökuleyfi og tveir höfðu aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta voru allt karlar en þeir voru teknir víðsvegar í umdæminu. Ökumennirnir eru á ýmsum aldri en sá elsti í hópnum er á níræðisaldri en viðkomandi hefur áður gerst sekur um umferðarlagabrot.