22. apríl 2024
22. apríl 2024
Reiknivél sem ber saman greiðslur í núverandi og nýja fyrirhugaða örorkulífeyriskerfinu
Á kynningu ráðherra í dag um fyrirhugaðar breytingar á örorkulífeyriskerfinu var kynnt ný reiknivél þar sem þú getur borið saman hvað þú færð í örorkulífeyri í núverandi greiðslukerfi og hvað þú myndir fá í nýju greiðslukerfi.
![](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2JbOnmKKLjYgqosLNrKIdd/13bb9d616119e0505d6cdc941809b70a/Myndir_fyrir_vef_Stj_rnarr__sins__2_.png?w=50&fm=webp&q=80)
![Reiknivél vegna fyrirhugaðra breytinga á örorkulífeyriskerfinu](https://images.ctfassets.net/8k0h54kbe6bj/2JbOnmKKLjYgqosLNrKIdd/13bb9d616119e0505d6cdc941809b70a/Myndir_fyrir_vef_Stj_rnarr__sins__2_.png?w=774&fm=webp&q=80)
Reiknivélin er á síðu Stjórnarráðsins og er hægt að nálgast hér.
Athugaðu að reiknivélin miðast við þau sem hafa áunnið sér full réttindi í íslenska almannatryggingakerfinu, eru búsett hér á landi og hafa 75% örorkumat. Fólk sem þetta á ekki við um og sem slær inn sínar upplýsingar í reiknivélina mun fá rangar niðurstöður.