27. mars 2007
27. mars 2007
Þessi frétt er meira en árs gömul
Reglugerð um ökuskírteini
Eitthvað virðist reglugerð um ökuskírteini hafa vafist fyrir sextán ára pilti sem var hársbreidd frá því að lenda í árekstri við lögreglubifreið í Reykjavík nýverið. Þrátt fyrir ungan aldur sat hann undir stýri bifreiðar en ekki var um æfingaakstur að ræða því enginn leiðbeinandi var með honum í för. Fyrir vikið fær pilturinn 10 þúsund króna sekt (akstur án þess að hafa öðlast ökurétt) en hann á margt ólært í umferðinni. T.d. það að ávallt skal virða biðskyldu en sú yfirsjón piltsins hafði næstum því reynst honum dýrkeypt eins og fyrr sagði. Þess má geta að umræddur piltur verður 17 ára í lok mánaðarins og vonandi mætir hann þá betur undirbúinn út í umferðina.
Í þessu sambandi er líka rétt að minnast frekar á reglugerð um ökuskírteini (nr. 501/1997) en hún var nefnd til sögunnar hér áðan. Þar segir m.a. í viðauka (IV) um ökunám; Ökutæki sem notað er til æfingaaksturs með leiðbeinanda skal auðkennt að aftan með merki með áletruninni Æfingaakstur. Sé brotið gegn þessu er heimilt að afturkalla leyfið. Borið hefur á því að merkið hafi vantað en afleiðingar þess eru þær sem að framan sagði.