Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

21. nóvember 2005

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rannsókn ríkislögreglustjóra á olíufélögunum og starfsmönnum þeirra er lokið og málið sent ríkissaksóknara

Ríkislögreglustjóri hefur lokið opinberri rannsókn á hendur olíufélögunum og starfsmönnum þeirra vegna ætlaðra refsiverðra brota í starfsemi fyrirtækjanna gegn ákvæðum samkeppnislaga nr. 8/1993.

Ríkislögreglustjóri sendi ríkissaksóknara þann 17. þessa mánaðar rannsóknargögn og niðurstöðu rannsóknar efnahagsbrotadeildar til ákvörðunar.

Rannsókn ríkislögreglustjóra hófst síðari hluta ársins 2003. Rannsóknin er umfangsmikil og skipta rannsóknargögn á annan tug þúsunda blaðsíðna og ætluð brotatilvik hundruðum. Í þágu rannsóknar málsins voru yfirheyrðir um 80 einstaklingar í um það bil 150 yfirheyrslum.

Nánari upplýsingar veitir Jón H. Snorrason, saksóknari, í síma 8997822.

Ríkislögreglustjóri, 21. nóvember 2005.