1. mars 2016
1. mars 2016
Þessi frétt er meira en árs gömul
Rannsókn manssalsmáls í Vík í Myrdal miðar vel
Rannsókn á meintu mansali í Vík í Mýrdal miðar vel. Þegar hafa átta vitni gefið skýrslu fyrir dómi. Öll höfðu þau verið í vinnu hjá Vonta International. Enn er eftir að yfirheyra nokkur vitni. Til aðstoðar við rannsóknina er mansalssérfræðingur og fjármunabrotadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, Europol, skattrannsóknarstjóri og ríkisskattstjóri. Auk yfirheyrslna er verið að afla gagna og vinna úr þeim. Rannsóknaráætlanir eru yfirfarnar á hverjum degi. Ekkert liggur fyrir um lok rannsóknarinnar.