Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

2. febrúar 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rannsókn á íkveikju í Þorlákshöfn

Héraðsdómur Suðurlands framlengdi í dag til 9. mars n.k. gæsluvarðhaldi yfir karlmanni á þrítugsaldri vegna rannsóknar lögreglu á innbroti, íkveikju og þjófnaði í íbúðarhúsi að Norðurbyggð 18 a í Þorlákshöfn aðfaranótt laugardagsins 20. janúar s.l.

Kærði hefur, við yfirheyrslur hjá lögreglu, játað að hafa brotist inn í húsið, stolið þar ýmsum munum og síðan að hafa borið eld að því í þeim tilgangi að fela ummerki um innbrotið. Rannsókn bendir til að hann hafi verið einn á ferð við þessa iðju sína.

Gæsluvarðhaldið byggist á 2. mgr. 103 gr. og c-liðar 1. mgr. 103 gr. laga nr. 19/1991 um meðferð opinberra mála.

Rannsókn lögreglu er vel á veg komin og verður málið sent Ríkissaksóknara að henni lokinni.