Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. mars 2018

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rannsókn á andláti manns á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu

Sérfræðingar tæknideildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu eru nú að ljúka störfum á vettvangi á sveitabæ í uppsveitum Árnessýslu en þar fannst maður á sjötugsaldri látinn í íbúðarhúsi. Tilkynnandinn, sem jafnframt er ábúandi á bænum, ásamt öðrum manni sem einnig var staddur á vettvangi, eru í haldi og bíða skýrslutöku hjá lögreglu. Mennirnir þrír eru bræður og voru tveir þeirra gestkomandi hjá þeim þriðja.Ummerki eru um að átök hafi átt sér stað á vettvangi. Dánarorsök mannsins liggur ekki fyrir en réttarkrufning verður framkvæmd strax eftir helgi til að leiða hana í ljós.Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verið fram á gæsluvarðhald í málinu.