Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

19. maí 2009

Þessi frétt er meira en árs gömul

Rán og húsbrot – áframhaldandi gæsluvarðhald

Tveir karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 16. júní að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli almannahagsmuna. Mennirnir, sem voru handteknir í lok apríl, hafa báðir játað að hafa framið rán og húsbrot í Arnarnesi.