14. nóvember 2003
14. nóvember 2003
Þessi frétt er meira en árs gömul
Rán í Hafnarfirði, framh….
Lögreglan í Hafnarfirði rannsakar nú vopnað rán sem framið var í Sparisjóði Hafnarfjarðar, Norðurbæ, en tilkynnt var um ránið klukkan 09:27 í morgun. Allir þeir sem telja sig hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að láta lögreglu vita. Lögregla óskar sérstaklega eftir því að heyra í þeim sem voru í eða við bankann á þessum tíma, hvort sem þeir telja sig hafa upplýsingar í málinu eður ei.