10. mars 2026
10. mars 2026
Rafvarnarvopni aldrei beitt á síðasta ársfjórðungi 2025
Ríkislögreglustjóri hefur birt nýja ársfjórðungsskýrslu yfir notkun á rafvarnarvopni hjá lögreglu.

Skýrslan sýnir heildarnotkun lögreglu á rafvarnarvopnum frá því að þau voru tekin í notkun sem valdbeitingartæki hjá lögreglu í september 2024.
Vopnin eru á sama stigi í valdbeitingarstiganum og kylfa og varnarúði og gefa lögreglu aukna möguleika á að velja þann varnarbúnað sem hæfir hverju verkefni. Með því er leitast við að auka öryggi almennings og lögreglu.
Þegar allt árið 2025 er skoðað eftir ársfjórðungum má sjá að flest mál þar sem rafvarnarvopn er dregið úr slíðri eða ógnað með tækinu voru á fyrsta ársfjórðungi, eða í 28 málum. Tækinu var oftast beitt á þriðja ársfjórðungi, eða í fjórum málum. Á síðasta ársfjórðungi voru fæst mál hvort sem litið er til fjölda þar sem tæki var dregið úr slíðri og/eða ógnað með því eða því beitt.