Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

14. október 2016

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ráðstefna – Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila í neyðarþjónustu

Allir viðbragðsaðilar í neyðarþjónustu upplifa erfið útköll og þeim fylgja stundum áskoranir sem geta dregið dilk á eftir sér í formi andlegrar vanlíðunar. Það er því mikilvægt að hlúð sé vel að sálrænum stuðningi þessa hóps. Dagana 2. – 4. nóvember munu Landssamband Slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna, Landssamband Lögreglumanna, Ríkislögreglustjóri, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Neyðarlínan 112, Landhelgisgæslan, Rauði Kross Íslands, Háskólinn í Reykjavík og Sálfræðingarnir Lynghálsi standa að ráðstefnu og vinnustofum um þessi málefni sem ber heitið „Sálrænn stuðningur við viðbragðsaðila í neyðarþjónustu“. Ráðstefnustjóri er María Ellingsen.

Ásamt innlendum mannauð í þessum málum; Dr. Berglindi Guðmundsdóttur, Dr. Sigríði Björk Þormar, Jóhanni Thoroddsen, Ólafi Erni Bragasyni, Njáli Pálssyni og Hjördísi Guðmundsdóttur munu fjórir erlendir sérfræðingar koma og flytja fyrirlestra og stýra vinnustofum. Á meðal þeirra er Dr. Stevan Hobfoll sem telst einn helsti sérfræðingur í heimi á uppbyggingu sálræns stuðnings og vinna flest mannúðarsamtök s.s. Alþjóða Rauði krossinn og Rauði hálfmáninn eftir fimm grundvallarmarkmiðum Hobfolls. Það er okkur einstakur heiður að njóta þekkingar hans á þessari ráðstefnu. Ráðstefnan er haldin þann 3. nóvember og er boðið uppá vinnustofur 2. og 4. nóvember. Skráning á ráðstefnuna og nánari upplýsingar um vinnustofur er að finna á netinu undir: www.salfraedingarnir.is

Sjá dagskrá hér: