Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

31. janúar 2007

Þessi frétt er meira en árs gömul

Öskur og læti vegna handboltaleiks

Lögreglan var kölluð að fjölbýlishúsi í Kópavogi um hálfníuleytið í gærkvöld. Tilkynnandi var áhyggjufullur og sagði að öskur og læti heyrðust úr íbúð í stigaganginum. Þegar að var gáð reyndist þetta eiga sér eðlilegar skýringar. Fólkið í íbúðinni var að fylgjast með viðureign Íslendinga og Dana á HM í handbolta en sá leikur var æsispennandi og þurfti framlengingu til að knýja fram úrslit. Þarna voru húsráðendur að hvetja strákana okkur til dáða en því miður dugði það ekki til.