Fara beint í efnið

9. mars 2022

Óskum eftir að ráða sérfræðing á sviði heilbrigðisupplýsinga

Embætti landlæknis óskar eftir að ráða sérfræðing til starfa á heilbrigðisupplýsingasviði við vinnslu og miðlun starfsemisupplýsinga sjúkrahúsa í tengslum við innleiðingu og þróun þjónustutengdrar fjármögnunar.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Sótt er um starfið á Starfatorgi þarm sem einnig eru nánari upplýsingar.

Á heilbrigðisupplýsingasviði embættisins er unnið að fjölmörgum spennandi verkefnum. Sviðið rekur gagnasöfn á landsvísu og er gagnasöfnun og gagnagreiningu embættisins ætlað að uppfylla margs konar þarfir. Má þar nefna stuðning við stefnu og aðgerðir heilbrigðisyfirvalda og ber sviðið m.a. ábyrgð á gagnagreiningu og miðlun tölfræði um heilsufar, sjúkdómabyrði og starfsemi heilbrigðisþjónustu sem nýtist m.a. við fjármögnun þjónustunnar.

Í boði er áhugavert og krefjandi starf þar sem reynir á almenna þekkingu í gagnagreiningu, öguð vinnubrögð, nákvæmni, samskiptahæfni og fagmennsku. Um nýtt starf er að ræða og mun viðkomandi aðili taka þátt í þróun þess. Næsti yfirmaður er sviðsstjóri heilbrigðisupplýsingasviðs en viðkomandi mun vinna í teymi sérfræðinga á sviðinu og í nánu samstarfi við aðra sérfræðinga embættisins.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • DRG (Diagnosis-Related Groups) flokkun starfsemisupplýsinga frá sjúkrahúsum

  • Samskipti við skráningaraðila í tengslum við DRG-vinnslu upplýsinga

  • Samskipti við Sjúkratryggingar Íslands vegna notkunar DRG-flokkunar til fjármögnunar

  • Þátttaka í gerð fræðsluefnis og leiðbeininga til skráningaraðila

  • Þátttaka í Norrænu DRG-samstarfi

  • Þátttaka í tölfræðilegri greiningu starfsemisupplýsinga

  • Þátttaka í teymum sem vinna að greiningu og túlkun heilbrigðisupplýsinga

  • Svara fyrirspurnum og erindum vegna ofangreindra verkefna

Hæfniskröfur

  • Háskólapróf sem veitir sterkan grunn í skráningu, gagnavinnslu og gagnagreiningu í heilbrigðisþjónustu, t.d. nám á sviði heilbrigðisvísinda

  • Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg t.d. rannsóknatengt framhaldsnám

  • Þekking og reynsla af tölfræðilegri greiningu gagna er skilyrði

  • Þekking og reynsla af vinnu með gagnagrunna er skilyrði

  • Þekking og reynsla af greiningu starfsemisupplýsinga sjúkrahúsa er kostur

  • Þekking og reynsla af DRG-fjármögnunarkerfinu er kostur

  • Góð almenn tölvukunnátta og ritfærni

  • Metnaður, skipulagshæfni og öguð vinnubrögð

  • Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og geta til að vinna í teymum og sjálfstætt

  • Góð færni í íslensku og ensku og gott vald á rituðu máli

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 21.03.2022

Nánari upplýsingar veita
Sigríður Haraldsd. Elínardóttir - shara@landlaeknir.is - 510 1900
Þórgunnur Hjaltadóttir - thorgunnur@landlaeknir.is - 510 1900