Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

18. febrúar 2011

Þessi frétt er meira en árs gömul

Ósætti vegna tölvunotkunar

Fyrr í vikunni var lögregla kölluð að heimili á höfuðborgarsvæðinu vegna ágreinings um tölvunotkun. Þar áttu mæðgin í útistöðum en þrætueplið var tölvunotkun sonarins. Móðirin vildi meina að tölvunotkunin bitnaði á náminu en pilturinn sá hlutina ekki sömu augum. Reynt var miðla málum og síðan farið af vettvangi. Ekki er vitað hvort viðvarandi lausn fannst á tölvunotkun unglingsins á þessu heimili en vandamálið er ekki með öllu óþekkt. Um það vitna önnur útköll lögreglu af sama tagi.