23. desember 2025
23. desember 2025
Opnunartímar heilsugæslustöðva HSN yfir jól og áramót
Upplýsingar um opnunartíma á heilsugæslustöðvum HSN yfir jól og áramót.

Opið er til kl. 12 dagana 24. og 31. desember nema hjá HSN á Akureyri er bráðaþjónusta frá 10-14 þessa daga. Hefðbundin opnun er á öllum starfsstöðvum 29. og 30. desember. Sjá starfsstöðvar
Hjá HSN Akureyri er opið fyrir bráðaþjónustu dagana 24. - 26. desember og 31. desember-1. janúar. Engar lyfjaendurnýjanir eða almennar tímabókanir eru þessa daga.
Bóka þarf tíma fyrir komu í gegnum símanúmerið 1700.
Lokað er á öðrum heilsugæslustöðvum HSN frá kl. 12, 24. desember – 26. desember og frá kl. 12, 31. desember – 1. janúar.
Veitt er ráðgjöf vegna bráðra veikinda og slysa í síma 1700 yfir jól og áramót. Í neyð er fólki bent á að hringja í síma 112.
Við minnum á Heilsuveru til að öðlast úrræði og fræðslu um heilsu, almenn veikindi og áhrifaríkar leiðir til að bæta lífsgæði þín.
Með ósk um gleðilega hátíð,
Starfsfólk HSN