Fara beint í efnið

13. júní 2024

Opnun á 4.000 tonna makrílpotti fyrir B-flokk

Fiskistofa hefur opnað fyrir umsóknir úr 4.000 tonna makrílpotti.

fiskistofa fiskar i neti mynd

Opnað er í samræmi við reglugerð um ráðstöfun 4.000 lesta af viðbótarheimildum í makríl. Á fyrsta virka degi hverrar viku afgreiðir Fiskistofa þær umsóknir sem bárust vikuna á undan.

Aðeins skip í B flokki sem hafa fengið úthlutað 30 tonnum eða minna, eða hafa veitt 75% eða meira af úthlutun sinni geta fengið viðbótarúthlutun. Hámarksúthlutun skips hverju sinni er 50 tonn og gjald fyrir úthlutun er 1,79 krónur á hvert kíló. Athugið að heimildir sem keyptar eru úr pottinum eru óframseljanlegar.

Umsóknir skal senda á fiskistofa@fiskistofa.is.