Fara beint í efnið

28. febrúar 2022

Opnað fyrir umsóknir í Sandkassanum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í sandkassaverkefni sem embætti landlæknis og Persónuvernd, í samstarfi við Stafrænt Ísland hafa komið á fót.

Landlæknir logo - Fréttamyndir

Fyrirtæki og aðrir aðilar sem hafa hug á að þróa gervigreind í heilbrigðisþjónustu eru hvött til að sækja um þátttöku.

Markmiðið með verkefninu, sem er að norskri og breskri fyrirmynd, er að auka þekkingu á og veita innsýn í nýjar og nýstárlegar lausnir á sviði gervigreindar, auk þess sem mögulegt er að greina hugsanlega áhættu í vinnslu persónuupplýsinga strax á frumstigi.

Verkefnið lýtur fyrst og fremst að því að leysa úr þeim áskorunum sem þeir sem eru að þróa gervigreind þurfa að takast á við í tengslum við persónuverndarlög.

Upplýsingasíða verkefnisins